Skvís út í Köben
Núna er ég stödd út í Köben að blogga heima hjá systur minni á meðan litla frænka mín syngur hérna á bak við mig.
Fríið mitt byrjaði í Ítalíu, á stað ekki langt frá Pisa. Rosalega næs staður og fallegt þar. Rosalega flott sundlaug þar.
Við fórum víða, til Pisa þar sem skakki turninn var skoðaður (mega skakkur!!), Florence þar sem marmarakirkja var skoðuð (omg hvað maður er í vöggu kaþólska ríkisins) og margt fleira.
Þetta var mjög skemmtilegt, fyrir utan það að ég ofþornaði eftir daginn í Pisa og ældi 3var og svaf nánast ekkert. Þambaði mega mikið vatn eftir það. Ég mæli alls ekki með því að ofþorna, það er ógeð.
Svo kláruðum við Ítalíu með því að heimsækja geitabónda við Alpana í tvær nætur, það var stuð og mega spes þar sem ekkert heitt vatn var þar. Hittum Íra þar sem voru að vinna hjá gaurnum eins og Vigga Tigga gerði á sínum tíma.
Kom svo hingað til Köben, tilgangurinn þar er að chilla, kaupa föt fyrir veturinn (sem ég er búin að gera núna), fara á tónleika með systur mínum og prófa nýja tækið í tívolí-inu.
Ég tala seinna. Ciao
Fluffy
1 ummæli:
uss bara... það var ábyggilega ekkert gaman á italíu..;) hehe seeegi svonaaa.. en það er gott að þú skemmtir þér.. og hey ég hefði nú getað sagt þér það að það er ekki það gáfulegasta í heimi að ofþorna en hey.. þú mannst það bara næst... en allavega.. skemmtu þér ótrúlega vel í Köben og keyptu allan heiminn! og hey.. tónleikar eru klááárlega málið og kallaðu svolítið og skemmtu þér fyrir mig líka..;) en ég vona að ég fari að hitta þig bráðum er farin að vanta gáfulegar samræður um eitthva sem er ekki svo gáfulegt.. ;)
Skrifa ummæli