laugardagur, september 03, 2005

Komin á klakann
Heiða systir mín lenti á klakanum í gær. Ég var hjá Kristínu Líf mest allan daginn eftir skóla, svo fór ég heim til að fara með pabba að sækja Heiðu á völlinn.
Við settumst í bílinn og keyrðum í átt að flugaranum (vellinum, fyrir fólk sem skilur mig ekki) og nutum tónlistarinnar í bílnum, the pimp'o'bil.
Svo komum við að Reykjanesbæ, allavega skildist mér að við værum komin þangað fyrst að við mættum RISAstórum stöfum sem sögðu "REYKJANESBÆR".
Ég verð nú eiginlega að lýsa undrun minni yfir þessu skilti. Í fyrsta lagi er peningamál sem poppar upp hjá mér. Hvað í guðanna bænum hefur þetta skilti kostað. Annað, who cares?!...í alvöru. Í þriðja lagi, hver er tilgangurinn með þessu skilti.
Þær nokkru sekúndur sem við keyrðum framhjá þessu skilti komu allar þessar spurningar í heilann á mér, en svo eftir smá stund að spá í þetta komst ég að því að þetta er bara lélegt rip-off af Hollywood skiltinu. Eins asnalegt og það hljómar.
Vildi bara koma þessu út úr mér, takk
kveð í bili...Arna spekulerari

föstudagur, júlí 15, 2005

Úff...úff og úff.

Á morgun er förinni heitið til lands sem kallast Danmörk. Jamm það er komið að því sem ÉG hef beðið eftir í laaaaangan tíma, að fara til Köben og hitta fólkið þar. Konungsfólkið, löggurnar, fólkið í Christaniu, fólkið í tívolí-inu og auðvitað rónana í Radhuspladsen. Hmm...já líka skrýtnu Íslendingana sem ég kall fjölskyldu.
Núna er ENN verið að bíða eftir krílinu, sem er ekki alveg að standa sig þegar það kemur að stundvísi...ekki gott merki fyrir framtíðina...hmmm...mm.
Allvega það er örugglega hægt að laga þannig vandamál ;)
Ég hlakka gífurlega til þegar krílið kemur í heiminn, loksins eitthvað sem ég, mamma og pabbi, og auðvitað afi og hele familien, getum dekrað við og þegar því er lokið...skilað því til foreldranna..muhahahahahahahahah..haha!

Bara að grínast....joke....hehe...allavega....see ya in Dänemark...

Arna Steinunn "aðeins að brjálast" Tryggvadóttir